
-
Úrslit frá æfingu 2.júní
Það komu 10 hlauparar til æfingar í dag. Þar á meðal ferðamaður frá Finnlandi sem var gripin við að mynda rathlaupsflagg. Hlaupari 10 stiga 20 stiga 30 stiga Aukamínútur Emilia Pietiläinen ferðalangur 7 5 3 30 Jóna 2 5 1 Gísli Jóns 7 5 3 Benedikt 6 2 0 Ólafur Páll 7 5 3 0.5 Nils…
-
Æfing í Öskjuhlíð
Fimmtudaginn 2.júní verður rathlaupaæfing í Öskjuhlíð. Endanleg staðsetning ræsingar liggur ekki fyrir en það er alveg upplagt að mæta í “félagsheimilið” (64° 7.304’N, 21° 55.623’W) þangað til annað verður tilkynnt. Brautin er opin frá kl 17:30-18:00
-
Kynningarrathlaup fyrir náttúrhlaupahópinn
Rathlaupafélagið Hekla var með kynningu á rathlaupi á náttúrhlaupanámskeiði Artic running og 66°N núna á laugardaginn (28.05.2016). Enginn hafði prófað rathlaup áður, en hópurinn stóð sig samt mjög vel. Enginn virtist villast neitt mikið en eitt liðið virðist hafa lent í vandræðu með tímatökubúnaðinn, eða bara gleymt síðustu stikunni (póstinum) :). Hér fyrir neðan eru…
-
Grafarvogsdagurinn (28.05.2016)
Rathlaupafélagið Hekla verður með rathlaupakynningu við Gufunesbæ (sjá hér) á laugardaginn (28.05.2016) milli kl. 11:00 og 13:00. Þetta er hluti af hverfahátið Grafarvogs, dagskrá má finna hér. Félagið er búið að láta setja upp fasta braut þarna í samstarfi við Reykjavíkurborg. Allir velkomnir að prófa. Brautir við allra hæfi, enda er þetta sérstaklega gott svæði…
-
Úrslit frá Rauðavatnæfingunni í gær (26.05.2016)
Leif setti út frábærar brautir gær, og það var gaman að hlaupa á nýju svæði. Hér koma svo úrslitin.
-
Fimmtudagsæfing við Rauðavatn.
Næsta æfing verður við Rauðavatn á fimmtudaginn. Veðurspáin bendir til þess að aðstæður verði ekki jafn góðar og á sunnudaginn og því verður aðeins boðið upp á eina braut um 2.5 km. Það má búast við að brautin verði nokkuð krefjandi og því verður þeim sem vilja prufa rathlaup boðið upp á að fara brautina…
-
Bikarmót 1 úrslit
Í dag fór fram fyrsta bikarmót sumarsins. Mótið fór fram í blíðskapar veðri í Elliðaárdal og mættu alls 13 hlauparar. Úrslitin má sjá hér. Haldin verða 3-4 mót yfir sumarið og er stigagjöfin þannig að veitt eru 10 stig fyrir fyrsta sæti, 6 fyrir annað sætið, 4 fyrir þriðja, 2 fyrir að klára brautina og eitt…
-
Bikarmót 1 í Elliðaárdal
Næstkomandi Sunnudag (22. maí) fer fram fyrsta bikarmót ársins. Mótið verður haldið í Elliðaárdal og verður boðið upp á tvær mis erfiðar brautir og póstasöfnun fyrir yngstu kynslóðina. Gefin verða stig eftir því í hvaða sæti maður lendir í hvert skipti og mun árangurinn í þrem bestu mótunum gilda. Hægt verður að mæta á milli…
-
Æfing á Klambratúni
Næstkomandi fimmtudag 19.5 verður rathlaup á Klambratúni en svæðið hentar einkar vel yngstu kynnslóðinni og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í rathlaupi. Boðið verður upp á stjörnurathlaup og brautir og er mæting kl 17:30 við Kjarvalsstaði
-
Æfing
Næst komandi fimmtudag 12. maí er æfing við Háskóla Íslands og er mæting við Norræna húsið kl 17:30. Æfingin er opin öllum