
-
Alþjóðlegi rathlaupadagurinn á miðvikudaginn (11.05.2016)
Við ætlum að minna aftur á alþjóðlega rathlaupadaginn sem verður næstkomandi miðvikudag, en áður hefur verið fjallað um hann hérna. En við vildum einnig bjóða almenningi og félagsmönnum að taka þátt með því að mæta við inngang Grasagarðsins í Laugardalnum einhvern tímann milli kl. 16.00 og 18.00 á miðvikudaginn. Þáttaka er ókeipis eins og á æfingum…
-
Vikubraut 6.-13. maí
Í dag verður sett upp braut í Öskjuhlíðinni sem mun fá að standa í viku. Við hvetjum alla til að nota tækifærið og taka létta æfingu. Brautina má nálgast hér: vikubraut 6.-13. maí.
-
Úrslit frá því í dag, 05.05.2016
Við pöntuðum gott veður, en það vantaði nokkur hitastig þegar veðrið var tekið upp úr kassanum fyrr í dag. Það hafði þau áhrif aðeins 6 manns mættu. Ekki það að það hafi verið neitt kalt í Elliðarádalnum sjálfum í öllu skjólinu af skóginum. En nóg um veðrið. Öllum þáttakendum gekk vel að finna alla póstana…
-
Æfing í Elliðarárdal, næsta fimmtudag (5.05.2016)
Á uppstigningardag verður næsta æfing Rathlaupafélagsins í Elliðarárdalnum. Að venju er boðið upp á stutta og langa byrjendabrautir auk þess sem línu-rathlaupabraut verður í boði fyrir lengra komna. Mæting milli kl.17.00 og 18.00. Búið er að panta gott veður, allir velkomnir. Mæting hér:
-
Tímar úr fyrstu æfingu sumarsins
Fyrsta æfing sumarsins fór fram í Öskjuhlíð í dag. Félagsmenn virðast eitthvað seinir að taka við sér eftir veturinn og því var fámennt en góðmennt á þessari fyrstu æfingu tímabilsins. Stíf norðanátt með tilheyrandi kulda kann að hafa fælt einhverja frá en þeir sem mættu skemmtu sér konunglega. Hér má sjá tímana úr æfingunni. Við…
-
Alþjóðlegi rathlaupadagurinn
Alþjóðlegi rathlaupadagurinn verður haldinn um allan heim þann 11. maí til að hvetja börn og ungmenni til að hreyfa sig úti í náttúrunni á skemmtilegan hátt og kynnast rathlaupaíþróttinni. Í Reykjavík er boðið upp á rathlaup í Laugardal og Gufunesi en í Selskógi á Egilsstöðum. Í tilefni af formlegri opnun fastara rathlaupabrautar í Gufunes ætla…
-
Æfing í Öskjuhlíð
Næst komandi fimmtudeg hefst æfingartímabilið og verður boðið upp á æfingu í Öskjuhlíð. Mæting er við félagsheimilið sem lítill skúr fyrir framan aðstöðu siglingaklúbbsins í Nauthólsvík. Æfingar hefjast kl 17:30 og við bjóða alla velkomna, byrjendur og lengra komna. Rathlaup er skemmtileg leið til að hreyfa sig og njóta útivistar um leið.
-
Vårspringet í Linköping
Hægt og rólega kemur vorið hér í Svíþjóð en það var þó heldur kalt um helgina og snjóaði aðeins á keppendur. Keppnistímabilið er farið á fullt hér og nú eru haldnar keppnir hverja helgi í Östgötland léninu. Sá sem hér skrifar, Gísli Örn, tók þótt í vorhlaupinu hjá Linköping klúbbnum og hljóp í erfiðum opnum…
-
Æfingadagskrá 2016
Við bjóðum öllum að taka þátt í rathlaupaæfingum sem fara fram á útivistarsvæðum borgarinnar. Hér má nálgast æfingadagskrá félagsins fyrir vorið 2016 Eins og áður verða æfingar á fimmtudögum þar sem hægt er að mæta frá kl 17:30 – 18:00. Æfinginn tekur yfirleitt frá hálftíma og upp í rúman klukkutíma. Nánari staðsetning er auglýst á síðunni…
-
Fréttir af ICE-O
Skráningar á ICE-O eru byrjaðar og nú hafa yfir 20 skráð sig til leiks. Við eigum von á því að fjöldi erlendra þátttakenda verði í ár í kringum 50 manns. Við fengum bréf frá ungu frönsku pari sem ætlar að mæta á ICE-O í ár og vildi kynna sig fyrir okkur. Þau stunda nám í Strassburg í…