-
Elliðaárdalur æfingaúrslit
Hér eru úrslitin frá því á æfingunni í dag. Flestir fóru í gulu brautina en hún reyndist ansi snúinn og lentu flestir í einhverjum erfiðleikum. Skúli og Nils spreyttu sig svo á korti þar sem búið var að fjarlægja alla stíga. Úrslit
-
Næsta æfing í Elliðaárdal
Næsta æfing verður núna á fimmtudaginn (27.) í Elliðaárdal. Boðið verður upp á þrjár mis krefjandi brautir þannig að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og að auki verður boðið upp á kort án stíga. Mæting er við félagsheimili Orkuveitunar (Rafstöðvarvegur 20) á milli kl 17 og 18.
-
Úrslit frá Ormsteiti
Í dag (22.08.2015) fór fram fyrsta rathlaupið á nýju korti af Selskógi við Egilsstaði. Hlaupið var haldið í tengslum bæjarhátíðina Ormsteiti og fór ég (Ólafur Páll) austur til að aðstoða við uppsetningu hlaupsins en Gísli Örn sá um brautargerð. 19 manns á öllum aldri skráðu sig til leiks en líklega hafa verið um 30 sem…
-
Úrslit úr Laugardalnum (20.08.2015)
Það bara fín mæting þrátt fyrir var æfinginn var auglýst seint. Alls mættu 11 þar af tveir nýliðar. Löng: Guðmundur 36 mín Ævar 47 mín Lena og Jón 52 mín Stutt: Jóna 24 mín Vigdís 24 mín Benedikt og Magnús 24 mín Niels og Jakob DNF
-
Rathlaupaæfing í Laugardalnum (20.08.2015)
Það verður rathlaupaæfing í Laugardalnum núna á Fimmtudaginn (20.08.2015). Hægt að mæta milli kl. 17.00 og 18.00. Ræst af stað við bílastæðið neðan við Langholtsskóla (sjá hér á ja.is), neðst á Holtavegi. Brautir við allra hæfi og allir velkomnir.
-
Rathlaup í Selskógi við Egilsstaði
Næstkomandi laugardag (22. ágúst) mun Hekla í samvinnu við heimamenn standa fyrir rathlaupi á glænýju korti af Selskógi. Hlaupið verður hluti af hátíð heimamanna, Ormsteiti. Hægt verður að mæta á milli klukkan 11 og 14.
-
Úrslit úr Öskjuhlíðinni
Það voru 15 galvaskir hlauparar (auk nokkura aðstoðarmanna) sem mættu á æfingu í dag (15.08.2015). Æfingin var með hefðbundnu sniði og voru bæði gamlar kempur og minna reyndir hlauparar sem mættu til leiks. Hér má sá úrslit dagsins.
-
Æfing á Laugardaginn 15. ágúst 2015
Næsta æfing verður á laugardaginn Öskjuhlíð. Æfingin sem átti að vera núna á fimmtudag er frestað vegna veðurs. Mæting á laugardaginn er millli kl. 11.00 og 12.00 í félagsheimilið í Nauthólsvík (sjá á mynd). Boðið verður upp á kaffi og kakó að loknu hlaupi. Í boði eins og vanalega er barnabraut, byrjendabraut og svo ein…
-
Æfing á Klambratúni
Næstkomandi miðvikudag verður rathlaup á Klambratúni en svæðið hentar einkar vel yngstu kynnslóðinni og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í rathlaupi. Boðið verður upp á tvær brautir (um 1 km og 2 km) og er hægt að mæta milli kl 17 og 18 við Kjarvalsstaði.
-
Álftamýrarskóli, úrslit
Nokkrir hressir rathlaupara ákváðu að hita upp fyrir helgina með því að fara á létta rathlaupsæfingu sem Dana hélt við Álftamýrarskóla, hér má sjá úrlsitin.