Ratlaupfélagið Hekla

Month: October 2011

  • Úrslit úr Mosfellsbæ

    Mjög skemmtilegt og hratt hlaup fór fram í Mosfellsbæ í dag á nýju korti. Svæðið er mjög skemmtilegt og býður upp á fjölbreytt rathlaup. Þetta kort er góð viðbót við þau svæði sem rathlaupsfélagið skipuleggur rathlaup á. Úrslit / Millitímar

  • Á morgun verður boðið upp á rathlaup í Mosfellsbæ á nýju korti. Mæting er aftan við Varmaskóla (Sjá mynd) Hægt að mæta kl 11 – 12:30. Frítt að prófa annar 500 kr. Boðið verður upp á erfiða braut og létta braut.

  • Úrslit úr rathlaupi

    Að þessu sinni var veðrið gott þrátt fyrir smá kulda sem hvarf um leið og lagt var af stað. Í lokin var farið að dimma og erfitt var að lesa á kortið. Keppnin var hörð bæði í lýsingarathlaupi og á léttu brautinni. Úrslit / Millitímar

  • Úrslit úr Boot Camp

    Boot Camp íþróttaþjálfunin skellti sér í rathlaup í Laugardalnum síðasta laugardag. http://www.habawaba.com/?p=3533 Hér má sjá úrslitin

  • Næstu rathlaup

    Næsta fimmtudag verður boðið upp rathlaup í Heiðmörk og er ræst frá Borgarstjóraplaninu (Sjá mynd). Hægt að mæta kl 17 – 18:30. Frítt að prófa annars 500 kr. Boðið verður upp á sérstaka æfingu sem nefnist lýsingarathlaup og einnig verður boðið upp á létta braut. Á sunnudag verður boðið upp á rathlaup í Mosfellsbæ á…