Ratlaupfélagið Hekla

Sumarnámskeið

Kæru foreldrar /forráðamenn

Skráning fer fram hér

Kæru foreldrar /forráðamenn

Í dag hefst fyrsta námskeiðið í rathlaupi sem byrjar á mánudeginum 15. júni og stendur til miðvikudagsins 24. júní. Námskeiðin byrja alla daga kl 16:30 og lýkur kl 18:00.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti ratað eftir korti og tekið þátt í rathlaupi.

Á námskeiðinu munu þátttakendur kynnast því táknmáli sem notað er við landakort og skilja hvernig kort virka. Notast verður við sænskt kennslu-og erfleikakerfið og hvert stig er táknað með lit. Við munum vinna í fyrstu tveimur stiginum sem eru grænt og hvítt stig.

Staðsetning: Námskeiðin fara fram í Öskjuhlíð og við hittumst í Nauthólsvík við lítið hús fyrir aftan Siglingasklúbbinn (sjá kort http://goo.gl/maps/kYDex).

Dagskrá námskeiðsins vikuna 15. – 23. júní.

15. júní mánudagur Farið verður í einfalda leiki til að kynnast kortatáknum og skilja hvernig kort virkar. Gengin verður hringur um nágrennið með korti og reynt finna mismunandi tákn.

16. júní þriðjudagur: Farið verður í ýmsa ratleiki sem tengjast því að geta snúið korti rétt eftir staðháttum og fylgja eftir línulegum kortatákanum.

18. júní fimmtudagur: Boðið upp á mæta á æfingu hjá félaginu sem fer fram í Hafnarfirði.

22. júní mánudagur: Eftir því sem öruggið eykst er þátttakendum leyft að spreyta sig á þyngri viðfangsefnum eftir getu hvers og eins. Við munum einnig ræða hvernig við ferðumst örugg í umhverfin og hvað við þurfum að varast þegar við erum á ókunnum slóðum.

23. júní þriðjudagur:  Kynnast því hvernig áttaviti virkar og hvernig er hægt að nota hann til að rata eftir á einfaldan hátt.

24. júní miðvikudagur: Rathlaup og rathlaupsæfingar

26. – 28. júní Föstudag  – Sunnudags  er rathlaupsmót í Reykjavík. Við bjóðum þátttaköndum  á námskeiðinu að taka þátt í mótinu.

Leiðeinendur: Gísli Örn Bragason, framhaldsskólakennari við Verzlunarskóla Íslands. Aðrir félagsmenn í Rathlaupsfélagnu Hekla aðstoða einnig við námskeiðin.

Bestu kveðjur,
Gísli Örn Bragason
gbragason@gmail.com
s:6926522

Kveðjur,

Gísli Örn