Author: Gísli Bragason

  • Úrslit frá Kambratúni

    Úrslit / Millitímar

  • Úrslit úr meistarmótinu

    Frábær keppni í góðu veðri og skemmtilegum félagskap. Rathlaupsfélagið Hekla þakkar öllum fyrir þátttökuna í mótinu og öllum hlaupunum í sumar. Úrslit úr flokkum Karlar 50 +: Guðmundur Hafsteinsson Karlar 15-49 ára: Gísli Örn Bragason Tómas Hájek Skúli M. Þorvaldsson Konur 15-49 ára: Dana Ježková Inga Tirone Lenka Vejrostova Úrslit / Millitímar

  • Rathlaup á Klambratúni

    Á fimmtudag 13. okt veðrur boðið upp á einfalt rathlaup fyrir alla fjölskylduna á Klambratúni við Kjarvalstaði. Hægt að mæta á milli kl 17:00 og 18:30. Það kostar 500 kr en frítt að prófa.

  • Úrslit úr Mosfellsbæ

    Mjög skemmtilegt og hratt hlaup fór fram í Mosfellsbæ í dag á nýju korti. Svæðið er mjög skemmtilegt og býður upp á fjölbreytt rathlaup. Þetta kort er góð viðbót við þau svæði sem rathlaupsfélagið skipuleggur rathlaup á. Úrslit / Millitímar

  • Úrslit úr rathlaupi

    Að þessu sinni var veðrið gott þrátt fyrir smá kulda sem hvarf um leið og lagt var af stað. Í lokin var farið að dimma og erfitt var að lesa á kortið. Keppnin var hörð bæði í lýsingarathlaupi og á léttu brautinni. Úrslit / Millitímar

  • Úrslit úr Boot Camp

    Boot Camp íþróttaþjálfunin skellti sér í rathlaup í Laugardalnum síðasta laugardag. http://www.habawaba.com/?p=3533 Hér má sjá úrslitin

  • Næstu rathlaup

    Næsta fimmtudag verður boðið upp rathlaup í Heiðmörk og er ræst frá Borgarstjóraplaninu (Sjá mynd). Hægt að mæta kl 17 – 18:30. Frítt að prófa annars 500 kr. Boðið verður upp á sérstaka æfingu sem nefnist lýsingarathlaup og einnig verður boðið upp á létta braut. Á sunnudag verður boðið upp á rathlaup í Mosfellsbæ á…

  • Innanhúsrathlaup í Flensborg

    Í dag var haldið í fyrsta skipti hér landi innanhúsrathlaup. Tilefnið var íþróttadagur í skólanum þar sem ýmis félag og samtök gátu kynnt sína starfsemi. Rathlaupsfélagið Hekla kynnti sína starfsemi með innanhúsrathlaupi um skólann sem vakti mikla eftirtekt. Ungmennunum fannst mjög gaman að prófa rathlaup og voru mörg áhugasöm um þessa íþrótt. Á meðfylgjandi mynd…

  • Næstu rathlaup

    Öskjuhlíð Næsta fimmtudag 22. september er boðið upp á rathlaup í Öskjuhlíð við Háskólann í Reykjavík. Sjá nánari staðsetningu með því að klikka á myndina. Hægt er að mæta á milli kl 17 og 18:30. Boðið verður upp á sérstaka æfingu sem nefnist línurathlaup en einnig verður boðið upp á langa og stutta braut .…

  • Rathlaup í Laugardal næsta fimmtudag

    Næsta fimmtudag 15. september er boðið upp á rathlaup í Laugardal. Sjá nánari staðsetningu með því að klikka á myndina. Hægt er að mæta á milli kl 17 og 18:30. Boðið verður upp á langa og stutta braut ásamt barnabraut. Frítt að prófa annars 500 kr. Allir velkomnir.