Síðasta almenna hlaup tímabilsins skv. dagskrá var haldið í gær í Öskjuhlíð. Níu manns mættu og spreyttu sig í mjög fallegu og góðu veðri. En það var svalt og jörðin frosin og sumsstaðar hál. Í boði var svokallað hæðalínurathlaup sem er krefjandi því búið var að fjarlægja alla stíga af kortinu. Formanni vorum fannst það hins vegar bara betra og hefur aldrei verið í eins góðu standi kallinn (sterar??). Haustskammdegið gerði lík vart við sig því þeir sem mættu eftir 17:30 voru í vandræðum í lok brautarinnar því þá var orðið rökkvað og ansi dimmt inni í skóginum. En fólk var glatt á hjalla og fólk orðið spennt fyrir meistaramótinu sem verður á sunnudaginn.
Löng (3,3 km):
1. 41:03 Davíð
2. 43:16 Gísli Örn
3. 53:38 Guðmundur F.
4. 55:20 Skúli
5. 55:53 Dana
6. 58:35 Gísli J.
7. 59:18 Fjölnir
8. 01:03: 56 Ólafur Páll – lauk ekki braut, varð kanínum að bráð…
Stutt (1,3 km):
1. 28:11 Hrafnhildur.
Neyðarhnakkinn þakkar fyrir sig.
Kær kveðja, Salvar.
Leave a Reply
You must be logged in to post a comment.