Laugardaginn 30. maí verður boðið upp á utanvega rathlaup á Hólmsheiði kl. 10:00–11:00.
Kort verða afhent við Sæmundarskóla við Reynisvatn (Biskupsgötu).
Í boði verða nokkrar vegalengdir sem henta mismunandi aldri og getu – frá um 1 km upp í 4–5 km í beinni loftlínu.
Rathlaup er krefjandi og skemmtileg útivist þar sem þátttakendur hlaupa eða ganga utan stíga og nota kort til að finna röð pósta sem hafa verið settir út í landslaginu.
Allir eru velkomnir að mæta og prófa – um er að ræða opna æfingu.
