Á fimmtudaginn (28.8.2014) var æfing í miðbænum sem hófst við Þjóðminjasafnið. Fyrir mistök var sagt hér á heimasíðunni að æfingin hafi átt að hefjast við Þjóðleikhúsið og biðjumst við hér með afsökunar á því ef einhverjir hafa mætt þangað. Farnar voru tvær brautir önnur 4,3 km en hin 2,3 km og virtust allir skemmta sér konunglega enda blíðskaparveður.
Löng (4,3 km)
Skúli 25:58
Gísli Jónsson 27:46
Ekki alveg jafn löng (2,3 km)
Martin og Lillje 30:22
Benedikt 23:21