Rathlaup á Hólmsheiði – laugardag 30. maí

Laugardaginn 30. maí verður boðið upp á utanvega rathlaup á Hólmsheiði kl. 10:00–11:00.

Kort verða afhent við Sæmundarskóla við Reynisvatn (Biskupsgötu).

Í boði verða nokkrar vegalengdir sem henta mismunandi aldri og getu – frá um 1 km upp í 4–5 km í beinni loftlínu.

Rathlaup er krefjandi og skemmtileg útivist þar sem þátttakendur hlaupa eða ganga utan stíga og nota kort til að finna röð pósta sem hafa verið settir út í landslaginu.

Allir eru velkomnir að mæta og prófa – um er að ræða opna æfingu.


Posted

in

by

Tags: