Níu manns mættu í æfinguna í dag og allar brautir prófaðar. Svæðið kringum Rauðvatn er mjög skemmtilegt og vonandi verðum við með fleiri æfingar þarna á þessu ári. Í heimsókn kom rathlaupari frá Gautaborg, Ilya, sem hefur einu sinni komið áður í Heiðmörk fyrir tveim árum ef ég man rétt. Einnig kom einn nýliði í fyrsta skiptið, en að öðru leyti voru þetta fastagestir. Flestum gekk vel en Dönu tókst að hlaupa út úr korti, en það getur komið fyrir bestu hlaupara :).
Tímar:
- Ilya: erfið, 23 mín
- Nils: erfið, 46 mín
- Dana: erfið, 58 mín
- Sigurður, byrjendabraut 26 mín
- Benedikt og Magnus, byrjendabraut, 41 mín
- Eva og Jakob, barnabraut, 46 mín