Í gær var boðið upp á áttaitaæfingu í Öskjuhlíð. Vigís, Jóna, Magnús, Benidikt og Ævar mættu til æfa tæknina í erfiðum aðstæðum þar sem unirgróður er orðinn hár og var að auki blautur eftir rigningu fyrr um daginn.
Einnig var boðið upp á að hlaupa hefbundna braut og spreyttu Gísli Jóns og Guðmundur sig á henni, auk þess sem sex manna hópur af tékkum mætti.
Flöggin munu fá að standa yfir helgina þannig að fólk getur tekið auka æfingu á eigin vegum. Hægt er að ná í brautir hér að neðan með eða án stíga.
Öskjuhlíð Rauð, Áttavitaæfing, Hvít, Rauð án stíga, Áttavitaæfing án stíga