Ratlaupfélagið Hekla

Rathlaupsæfingar fyrir börn og unglinga

Í sumar ætlar Rathlaupsfélagið Hekla í samstarfi við skátafélagið Vífil að bjóða upp á æfingar í rathlaupi sem er ung íþrótt hér á landi.

Hvað er rathlaup?
Rathlaup er hlaupaíþrótt sem virkar eins og hefðbundin ratleikur að finna ákveðna pósta sem eru merktir inn á kort í ákveðinni röð.

Fyrir hverja eru æfingarnar?
Þær eru fyrir börn og unglinga á aldrinum 10 – 15 ára.

Hvað er gert á æfingum?
Æfingar sem fram fara í Jötunheimum er sérstaklega til þjálfunar á kortlestri og notkun á áttavita. Byrjað er á einföldum kortaæfingum sem þyngjast smátt og smátt.

Hver er munurinn á æfingum merktum rauðum og grænum lit?
Rauður táknar æfingar í Jötunheimim sem eru sérstaklega ætlaðar fyrir börn og unglinga. Þessar æfingar fara fram á mánudögum á milli kl 17 og 18:30.

Grænn táknar opnar æfingar hjá rathlaupsfélaginu sem eru fyrir bæði börn og fullorðna. Þær fara fram alla fimmtudaga  og einstaka sunnudaga.  Á fimmtudögum er opið að mæta frá  kl  17:00  til 18:30 og á sunnudögum frá  kl  12:00  til 14:00.

Hvað kostar?
Það kostar aðeins 2500 kr að taka þátt í þessum æfingum frá 21. maí til 28. júní.

Nánari upplýsingar
www.rathlaup.is og hjá Gísla Erni Bragasyni gbragason@gmail.com s: 692 6522

Skráning
Fer fram hér

Dagskrá  maí – júní 2012

21.5.2012 Jötunheimar
24.5.2012 Laugardalur A
27.5.2012 Vífilsstaðahlíð
28.5.2012 Jötunheimar
31.5.2012 Ullarnesbrekkur B
4.6.2012 Jötunheimar
7.6.2012 Miklatún
10.6.2012 Heiðmörk A
11.6.2012 Jötunheimar
14.6.2012 Laugarnesskóli
18.6.2012 Jötunheimar
21.6.2012 Háskóli B
25.6.2012 Jötunheimar
28.6.2012 Öskjuhlíð B

Posted

in

by

Tags:

Comments

Leave a Reply