Ratlaupfélagið Hekla

Aðalfundur-ný dagsetning!

Kæru félagsmenn Rathlaupafélagsins Heklu

Þar sem sóttvarnarreglur komu í veg fyrir að við gátum haldið aðalfund á auglýstum tíma hefur verið ákveðið að aðalfundur fari fram þann 21. apríl næstkomandi. Fundurinn verður haldinn kl 20 í húsi Siglingaklúbbsins í Nauthólsvík.

Dagskrá:
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar um liðið starfsár.
Ársreikningar lagðir fram og bornir undir atkvæði.
Umræður um félagsgjöld og afgreiðsla.
Kosning um lagabreytingar.
Kosning stjórnarmanna og skoðunnarmanna reikninga.
Komandi starfsár kynnt.
Önnur mál
Minnt er á 7. gr laga félagsins sem finna má á heimasíðunni (www.rathlaup.is) ef félagsmenn hyggjast leggja til breytingar á lögum. Tillögur að lagabreytingum skal senda á rathlaup@rathlaup.is

í liðnum önnur mál verða m.a. rætt um dagskrá sumarsins, alþjóðlega rathlaupadaginn og páskaeggjarathlaupið


f.h. stjórnar Rathlaupafélagsins
Ólafur Páll ritari


Posted

in

by

Tags: