Ratlaupfélagið Hekla

Aðalfundarboð

Kæru félagsmenn Rathlaupafélagsins Heklu

Aðalfundur félagsins verður haldin miðvikudagskvöldið 24. mars kl. 20.00 í siglingaklúbbshúsinu í Nauhólsvík. Boðið verður uppá léttar veitingar og vonumst við til að sjá sem flesta félagsmenn og áhugafólk um rathlaup.

Dagskrá:
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar um liðið starfsár.
Ársreikningar lagðir fram og bornir undir atkvæði.
Umræður um félagsgjöld og afgreiðsla.
Kosning um lagabreytingar.
Kosning stjórnarmanna og skoðunnarmanna reikninga.
Komandi starfsár kynnt.
Önnur mál
Minnt er á 7. gr laga félagsins sem finna má á heimasíðunni (www.rathlaup.is) ef félagsmenn hyggjast leggja til breytingar á lögum. Tillögur að lagabreytingum skal senda á rathlaup@rathlaup.is

í liðnum önnur mál verða m.a. rætt um dagskrá sumarsins, alþjóðlega rathlaupadaginn og páskaeggjarathlaupið

Ef til vill verður boðið upp á létta æfingu fyrir fundinn en það verður þá auglýst þegar nær dregur.

f.h. stjórnar Rathlaupafélagsins
Ólafur Páll ritari


Posted

in

by

Tags: