Ratlaupfélagið Hekla

Haustmót Heklu

dsc_0057Haustmótið verður haldið laugardaginn 24. september. Fyrir utan ICE-O er þetta okkar stærsta mót og því verður boðið upp á gott úrval vandaðra brauta. Allir ættu því að geta fundið braut við sitt hæfi og að hlaupi loknu verður boðið upp á léttar veitingar. Mæting er við Þorláksgeisla 51 og verður hægt að ræsa frá klukkan 10:00.

 

Eftirfarandi brautir verða í boði

2 km      Hvít

3 km      Gul

4 km      Svört

9 km      Gul

10 km    Svört

 

Hvítar brautir eru minnst krefjandi og hennta vel fyrir börn eða þá sem eru að prufa rathlaup í fyrsta skipti. Gul braut er með nokkuð einfaldri rötun en getur verið krefjandi fyrir þá sem ekki hafa mikla reynsli í rathlaupi. Svartar brautir eru síðan með mjög erfiðri rötun og er ekki mælt með að byrjendur hlaupi slíka braut þar sem þeir munu líklega eiga í vandræðum með að klára.


Posted

in

by

Tags: