Ratlaupfélagið Hekla

Meistaramótið 2014

5918615748_532ce7d830_bMeistaramótið markar lokin á sumarstarfi Rathlaupsfélagsins Heklu og að þessu sinni verður það haldið í Heiðmörk. Við höfum fengið afnot af skála Norðmanna sem nefnist Torgeirsstaðir.

Meistaramótið er fjölskyldumót fyrir alla og munu við bjóða upp á einfaldar brautir meðfram stígum og flóknari brautir. Einnig verður boðið upp á brautir fyrir börnin. Við hvetjum því alla til að mæta og taka þátt í þessum skemmtilega degi með okkur.

Mótið fer fram laugadaginn 27. september og byrja að ræsa kl 12:00 í hlaupið og ræst verður til kl 12:30.

Brautir sem verða í boði eru:
Hvíta létta braut  2,8 km 6 póstar,
Gul/rauð – meðal erfið 3,6 km 9 póstar,
Svört – erfið braut 4,0 km 10 póstar
Svört – erfið 6,8 km 14 póstar
Boðið verður upp á veitingar og meðlimir eru hvattir til að taka með sér kökur
Staðsetning: Torgerisstaðir eru í Heiðmörk og keyrt er hefðbundna leið í Heiðmörk. Beygt er af Heiðmerkurvegi til vinstri rétt eftir bílastæðið við Furulund. Leiðin verður merkt með rathlaupsflöggum. Sjá kort

Posted

in

by

Tags: