Ratlaupfélagið Hekla

Month: June 2012

  • ICE-O 2012 startlist – Update July 7th

    Startlist Friday Startlist Satuday Startlist Sunday

  • Úrslit úr síðustu hlaupum

    Háskóli Íslands 22. júní Heildartímar / Millitímar Öskjuhlíð 29. júní Heildartímar / Millitímar

  • Rathlaupsæfing í Öskjuhlíð

    Rathlaupsæfing á morgun, fimmtudag,  þar sem hægt er að mæta frá kl 17 til 18:30. Hlaupið hefst við Perluna og boðið upp á þrjár veglengdir, langt 4 km, stutt 3 km og byrjenda 2 km. Nú er um að gera mæta og taka þátt í skemmtilegu hlaupi.

  • Háskóli 21. júní

    Næst síðasta æfing fyrir ICE-O er á fimmtudaginn við Háskóla á milli kl. 17 og 18.30. Boðið verður upp á einfalda byrjendabraut sem er 1 km og lengri braut um 3 km. Hlaupið hefst við Þjóðminjasafnið Íslands. Allir að mæta og gera sig klár fyrir ICE-O!

  • Tímar úr 17. júní hlaupi í Garðabæ

    Í Garðabæ var haldið 17. júní rathlaup í kringum Ásgarð. Hér má sjá tímana úr hlaupinu. Heildartími / Millitími

  • ICE-O 2012 Krefjandi víðvangshlaup

    Við viljum vekja athygli á ICE-O 2012 sem er alþjóðlegt þriggja daga rathlaupsmót sem haldið er í nágrenni Reykjavíkur. Nú þegar hafa yfir 70 erlendir þátttakendur skráð sig til leiks en við höfum áhuga að reyna fjölga Íslendingum og um leið kynna þeim fyrir stemningunni í tengslum við rathlaupsmót. Nánari upplýsingar er finna hér ICE-O_auglysing

  • Laugarnesskóli

    Þrátt fyrir smá skúrir mættu hressir rathlauparar en gaman hefði verið sjá fleiri andlit. Hér má sjá tímana úr hlaupinu Heildartímar / Millitímar

  • Æfing á fimmtudag við Laugarnesskóla

    Næstkomandi fimmtudag, 14. júní er rathlaupsæfing við Laugarnesskóla á milli kl. 17.00 – 18.30. Boðið verður upp á tvær brautir, barnabraut og hefðbundna. Svæðið í kringum Laugarnesskóla er kjörið fyrir þá sem vilja prófa rathlaup í fyrsta sinn. Allir velkomnir!

  • Tímar úr síðustu hlaupum

    Klambratún Heildartímar/ Millitímar Mosfellsbær Heildartímar / Millitímar / Myndrænt

  • Æfing á laugardag í Mosfellsbæ

    Við bjóðum öllum að mæta í kynningu á rathlaupi sem haldin verður í Mosfellsbæ á morgun , laugardag, þar sem hægt að mæta á milli kl 11 og 13 við Íþróttamiðstöðina Varmá (kort). dissertation writing services uk Boðið verður upp á einfalda byrjendabraut sem er um 2 km og erfiðar lengri braut um 5 km.