Ratlaupfélagið Hekla

Hlaupaæfing og kennslukvöld

Næst komandi fimmtudag verður að venju skokkæfing kl 17 og lagt verður af stað frá Jötunheimum, Bæjarbraut 7 í Garðabæ.
Seinna um kvöldið kl 20:00 verður haldið kennslukvöld og er haldið áfram með vinnu í brautargerð. Gott er að vera búinn að búa til braut áður og hér má nálgast “rétt” kort af Heiðmörk
Á milli hlaupaæfingar og kennslukvölds verður hægt að fara í sund í Garðabæjarlauginni og um kl 19:00 verður boðið verður upp á kvöldmat fyrir 500 kr í Jötunheimum. Gott er að vita um þátttöku en það má láta Gísla Örn vita með pósti á gbragason@gmail.com

Við hvetjum félagsmenn til að mæta.


Posted

in

by

Tags:

Comments

Leave a Reply