Ratlaupfélagið Hekla

Month: September 2011

  • Innanhúsrathlaup í Flensborg

    Í dag var haldið í fyrsta skipti hér landi innanhúsrathlaup. Tilefnið var íþróttadagur í skólanum þar sem ýmis félag og samtök gátu kynnt sína starfsemi. Rathlaupsfélagið Hekla kynnti sína starfsemi með innanhúsrathlaupi um skólann sem vakti mikla eftirtekt. Ungmennunum fannst mjög gaman að prófa rathlaup og voru mörg áhugasöm um þessa íþrótt. Á meðfylgjandi mynd…

  • Blautustu úrslit ársins?

    Rathlaupið á Háskólasvæðinu fór hið besta fram þó að það rigndi látlaust og Vatnsmýrin væri vel blaut. Þátttakendur voru fáir, aðeins sex, og völdu allir lengri brautina. Úrslit má sjá hér: Úrslit / Millitímar Millitímaskráin er nú rétt en í fyrstu útgáfu af henni vantaði einn póst, nr. 10 (40). gh.

  • Háskólasvæði 29. september 2011

    Næsta rathlaup er á Háskólasvæðinu (og í Vatnsmýri og Hljómskálagarði) fimmtudaginn 29. september og að vanda er hægt að byrja hlaupið hvenær sem er milli 17:00 og 18:30. Rásmark er við Háskólatorg, sjá myndina hér til hliðar. Velja má um tvær brautir, 3,5 km og 2,1 km. Báðar brautirnar verða að teljast fremur auðveldar og…

  • Millitímar úr Öskjuhlíð, 22. sept

    Þar sem ekki er hægt að finna neinn sérstakan sigurvegara í Línurathlaupinu, geta þáttakendur dundað sér við að finna á hvaða leggjum þeir stóðu sig best. Hér koma millitímarnir í tveim mismunandi formum. Millitími 1 / Millitími 2

  • Úrslit úr Öskjuhlíð, 22. september 2011

    Það var fagur og sólríkur haustdagur sem fagnaði 19 þátttakendum í rathlaupi í hinni grónu og indælu Öskjuhlíð. Með bjarsýnisblik í auga lögðu hlauparar á rás til að keppa við sjálfan sig, klukkuna og um leið að taka áskoruninni við að hlaupa línurathlaup. En sakleysilegt blik samhentra Hekluhlaupara hafði breyst í þreyttar og sveittar ásjónur enda…

  • 9. okt. á nýu korti

    Þann 9. okt. átti að vera íslenskt meistaramót í boðhlaupi, en vegna tafa í kortagerð er ekki hægt að undirbúa það nógu vel. Í staðinn verður bara venjulegt rathlaup fyrir alla. Tvær brautir – létt og erfið. Ég vona að það komi sem flestir þar sem kortið og svæðið er splungunýtt! Allir eru velkomnir og…

  • Borgarnes fellur niður í dag sunnudag

    Því miður þá fellur hlaupið sem átti að vera í Borgarnesi (Einkunnum) í dag sunnudag niður. Ekki er næg þátttaka í hlaupinu hvorki frá höfuðborginni né frá Borgarnesi til að halda það. Við gerum ráð fyrir að halda hlaup í borgarnesi á næstunni í tengslum við verkefni sem að UMFS stendur fyrir. Næsta hlaup er…

  • Næstu rathlaup

    Öskjuhlíð Næsta fimmtudag 22. september er boðið upp á rathlaup í Öskjuhlíð við Háskólann í Reykjavík. Sjá nánari staðsetningu með því að klikka á myndina. Hægt er að mæta á milli kl 17 og 18:30. Boðið verður upp á sérstaka æfingu sem nefnist línurathlaup en einnig verður boðið upp á langa og stutta braut .…

  • Úrslit úr Laugardalnum, 15. sept. 2011

    Mæting á æfinguna var góð þrátt fyrir lítils háttar rigningu. Hress hlaupahópur mætti og voru flesti ef ekki allir að prófa rathlaup í fyrsta sinn. Viljum minna á næsta hlaup sem fer fram í Öskjuhlíð fimmtudaginn 22. september. Nánari upplýsingar munu birtast á síðunni þegar nær dregur. Úrslit/Millitími

  • Rathlaup í Laugardal næsta fimmtudag

    Næsta fimmtudag 15. september er boðið upp á rathlaup í Laugardal. Sjá nánari staðsetningu með því að klikka á myndina. Hægt er að mæta á milli kl 17 og 18:30. Boðið verður upp á langa og stutta braut ásamt barnabraut. Frítt að prófa annars 500 kr. Allir velkomnir.