Ratlaupfélagið Hekla

Fínn dagur í Heiðmörk

Hlaupið í Heiðmörk í dag gekk vonum framar. Startað var frá Furulundi og boðið var upp á tvær brautir. Sú styttri var 1.7km en hin lengri 3.9km. Alls mættu 8 hlauparar til leiks, allt kunnuleg andlit. Vonandi fer landinn að koma úr tjaldferðalögum sumarsins.

Næsta hlaup verður á Klambratúni en þar er tilvalið fyrir byrjendur að kynnast þessari stórskemmtilegu íþrótt.

Úrslit dagsins má sjá hér og millitíma hér.


Posted

in

by

Tags:

Comments

Leave a Reply